Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó Veðurguð, stígur fram í grein á Vísi og segir síðasta tæpa ár hafa veið sér erfitt eftir að hann var sakaður um margvíslegt kynferðislegt ofbeldi.
Í grein sinni vísar hann ásökunum á bug. „Undanfarna mánuði hef ég verið borinn þungum sökum sem ekki eiga sér stoð í raunveruleikanum og setið undir ósannindum af ýmsu tagi. Ég hef til að mynda verið kallaður ofbeldismaður, nauðgari og barnaníðingur þó það gæti ekki verið fjær sannleikanum,“ skrifar Ingó.
Hann segir mál sitt hafa byrjað þannig að hann hafi fengið símtal frá blaðamanni Mannlífs. „Og er ég spurður hvort ég vilji láta hafa eitthvað eftir mér varðandi ummæli aðila sem að ég átti að hafa nauðgað fyrir 15 árum. Stuttu áður hafði góð vinkona mín sagt mér að ,,ég væri næstur og það væri verið að skipuleggja að taka mig fyrir næst‘‘.
Ég kem eðlilega af fjöllum enda gæti ég ekki gert svo svívirðilegan hlut að nauðga þó byssu væri miðað að höfðinu á mér. Við nánari eftirgrennslan kemur í ljós að á ferðinni er kona sem ég fór á nokkur stefnumót með fyrir 15 árum síðan. Stuttu áður hafði hún sagt að erfitt væri að setja sig í spor einhvers sem hefði verið nauðgað þar sem hún hefði ekki lent í slíku.“
Segir árásir gegn sér hafa verið marvíslegar
Ingó segir að í kjölfarið hafi sannkölluð áróðursherferð farið af stað og kallað eftir sögum um sig. Þar hafi sannleikurinn virst hafa engu skipt að sögn Ingós og ekki leitað eftir heimildum eða sannleiksgildi sagnanna.
„Í því sambandi má benda á að kona nokkur hefur viðurkennt að hafa sent inn nokkrar sögur sem voru uppspuni frá rótum, til þess eins að sjá hvort þær fengjust birtar. Þær voru allar birtar. Nafnlaust. Ég styð heilshugar baráttu gegn kynferðisbrotum og ofbeldi en aðförin að mér, minni persónu og atvinnu, tel ég ekki framlag í þeirri baráttu.“
Ingó segir að Instagram aðgangurinn sinn hafi meðal annars verið eyðilagður og aðilar villt á sér heimildir og þóst vera hann inni á samfélagsmiðlinum Snapchat.
„Hópur kvenna, sem ég þekki ekki neitt, ákvað að mótmæla því að ég syngi á þjóðhátið í Vestmannaeyjum og fengu sínu framgengt.
Að auki var því svo slegið upp í fréttum að ég væri einhverra hluta vegna ekki bókaður að syngja fyrir ákveðna hópa en á sama tíma á ég í mínum bókum um 50 skipti þar sem ég hef komið fram fyrir slíka hópa undanfarin ár.“
Kærastan þurfti að hætta í vinnunni
Ingó segist alltaf hafa staðið með þeim sem hafa orðið fyrir einelti og ofbeldi. Hann segist hafa setið undir margvíslegum ósannindum þar sem öllu er grautað saman og hann haft enga leið til að verja sig.
„Þá hafa þeir sem standa mér næst, fjölskylda og vinir, fengið að finna fyrir aðförinni gegn mér. Auk þess sem þeim þykir sárt að hlusta á ósannindi um mig hafa þau orðið fyrir grófum árásum sjálf vegna mín, svo grófum að kærasta mín þurfti til að mynda að hætta í vinnu sinni. Þetta er eitthvað sem enginn sér og fólk áttar sig kannski ekki á. Ásakanir sem þessar bitna því oft mest á saklausu fólki sem á það síst skilið.“
Ingó segir árásarherinn ekki fjölmennan, heldur þvert á móti mjög fámennur hópur sem fjölmiðlar veita mikið pláss.
„Margir hafa haft samband við mig persónulega og lýst yfir stuðningi við mig. Oft er þetta fólk sem ég ekki þekki en þorir ekki að stíga fram og tjá sig opinberlega af ótta við hefndaraðgerðir. Ástæða þess er eðlileg, því þeir örfáu sem hafa gert það og sett spurningarmerki við aðferðina sem notuð er hafa heldur betur fengið að heyra það.“
Hefur kvatt X-Mist
Þá rekur Ingó áhrifin sem þetta hefur haft á feril hans. Hann segir starf sitt sem tónlistarmaður hafi verið lagt í rúst.
Öll gigg, tónlist hans og verkefni hafi verið tekin úr sambandi, meðal annars stór verkefni sem búið var að skipuleggja.
„Ástæðan er ekki sú að viðkomandi aðilar trúi hinum nafnlausu frásögnum, treysti mér ekki til starfsins eða geri athugasemdir við mig, heldur sú að þeir óttast að lenda sjálfir í árásarhernum. Er sá ótti enda á rökum reistur þar sem ráðist hefur verið opinberlega á þá sem ég hef giggað hjá frá því aðförin gegn mér hófst.“
Breskum samstarfsaðilum sagt að Ingó sé nauðgari og barnaníðingur
Þá segist Ingó ekki lengur sjá sér fært að starfa við hreinsivörufyrirtæki sitt X-Mist lengur, sem hann rak ásamt góðum vini sínum.
„Enda hefur þessi vinur minn og fjölskylda hans liðið mest fyrir linnulausar árásir. Það er í raun ótrúlegt að upplifa hvað sumt fólk er tilbúið að ganga langt í óhróðri og lygum til þess að ná sínu fram. Tilgangurinn virðist helga meðalið og þá skiptir engu hvaða aðferðum er beitt.“
Ingó segir að haft hafi verið samband við fyrirtæki og verslanir með hreinum og klárum hótunum um að viðkomandi aðilar hafi verra af ef viðskiptunum er haldið áfram.
„Allt er þetta gert til að koma í veg fyrir að vörur frá X- mist séu til sölu. Svo langt hefur þetta framferði gengið að haft hefur verið samband við eigendur samstarfsfyrirtækis í Bretlandi og ég sakaður um að vera nauðgari og barnaníðingur! Svo það sé tekið fram hef ég aldrei verið svo mikið sem ákærður hvað þá sakfelldur fyrir ofbeldisbrot af nokkru tagi.“
Ingó segir hópinn ekki una sér hvíldar fyrr en hann sé orðinn fullviss um að fyrirætlanir hans á nýjum starfsvettvangi utan sviðsljóssins séu einnig að engu orðnar.
„Undir þessum kringumstæðum er ekki annað hægt en að velta fyrir sér raunverulegum tilgangi þeirra sem ganga hvað harðast fram. Sumir hafa til að mynda haft fjárhagslega hagsmuni af því að kalla fram bitastæðar frásagnir, allt í nafni málstaðarins væntanlega.“
Vonar að hófstillt fólk taki yfir baráttuna
Í síðasta hluta greinar sinnar segist Ingó vera mistækur. Hann segist standa við allt sem hann hafi sagt og gert í gegnum tíðina.
„Því miður get ég ekki orða bundist þegar óviðeigandi hegðun, dónaskap eða skeytingarleysi er skeytt saman við jafn vondan hlut og kynferðisofbeldi, nauðganir og barnaníð,“ skrifar Ingó.
Hann segist vera á móti hverskyns ofbeldi og segist finna til fyrir þeim sem orðið hafa fyrir nauðgunum og kynferðisofbeldi.
„Ég er á móti hverskyns ofbeldi og finn til með þeim sem hafa orðið fyrir nauðgunum og kynferðisofbeldi. Eðlilegt er að berjast gegn ofbeldi og kynferðisbrotum og bæta kerfið okkar þannig að það hlúi sem best að þolendum. Ég vona að hófstillt fólk taki yfir þessa baráttu og skilji að það að saka fólk um eitthvað sem að það hefur ekki gert mun ekki hjálpa málstaðnum. Þegar baráttan er rekin af fólki sem nýtir það til að fá athygli eða fólki sem vill sjá blóð vinnst ekki neitt. Hverjar eru annars lausnirnar sem verið er að boða?“