Sjúkra­flutninga­maður segir bráða­mót­tökuna stappaða: „Þurfum í­trekað að bíða með skjól­stæðinga á börunum okkar“

Ás­laug Birna sem starfar sem slökkvi­liðs og sjúkra­flutninga­maður sam­hliða hjúkrunar­fræði­námi segir að það hafi verið brjálað að gera í sjúkra­flutningum í dag og að bráða­mót­takan sé stöppuð.

„Við þurfum í­trekað að bíða lengi með skjól­stæðinga á börunum okkar því það eru engin laus pláss. Fólk liggur á göngunum um alla deild. Leitið frekar á heilsu­gæslu en slysó ef þið getið!“ skrifar Ás­laug á Twitter.

Í nýjum pistli sótt­varna­læknis í dag segir að ekki hafi verið meira álag á heil­brigðis­stofnunum og sjúkra­húsum frá því að far­aldurinn hófst fyrir tveimur árum.

Inn­lögnum á sjúkra­hús hefur fjölgað veru­­lega en hlut­­fall já­­kvæðra hrað­prófa er í dag svipað og hlut­­fall já­­kvæðra PCR prófa, vegna lakara næmis hrað­prófa er þetta vís­bending um að út­breiðslan sé meiri en áður.