„Sjúkdómurinn einn og sér hefur leikið mig grátt“

Um fáa einstaklinga hefur verið meira fjallað um undanfarna áratugi en Jónínu Benediktsdóttur, íþróttakennara, bisnesskonu og frumkvöðul – og um langt árabil má segja að hún hafi verið ein umdeildasta kona landsins. Hún er frumkvöðull á marga vísu í heilsu-og líkamsræktargeiranum, og áratugir síðan hún kynnti fyrir þjóðinni Eróbikk og Spinning svo eitthvað sé nefnt, en hún tók líka misjafna en háværa slagi við valdamenn í íslensku viðskiptalífi og varði manninn sinn, Gunnar kenndan við Krossinn, þegar konur í söfnuðinum ásökuðu hann um kynferðislegt ofbeldi og svo einnig þegar dóttir hans kærði hann til Sérstaks saksóknara.

Jónína er gestur Lindu Blöndal í þættinum 21 á Hringbraut í kvöld og segir frá því hvernig hún hefur tekið á vanlíðan sinni og brestum í meðferð. Hún er nú að sínum hætti að hefja námskeið fyrir fólk í leit að betri heilsu og líðan. Jónína hefur um langt árabil haldið slík námskeið, þekktust eru Detox námsskeiðin sem hún stóð fyrir í Póllandi og margir Íslendingar hafa sótt. Nú hefur hún komið á fót námskeiðum í Hveragerði þar sem hún hefur verið búsett í um tvö ár. Jónína leitaði sér í byrjun árs hjálpar við áfengissýki og fór í meðferð í Krýsuvík og ber dvölinni þar og meðferðinni gott vitni. Hún komi sterk til baka.

„Ég er að reyna að vera hér og nú og að lifa í núinu hefur reynst mér gríðarlega erfitt þannig að ég er að reyna svona að breyta um hugarfar og njóta augnabliksins, ég hef ekki kunnað það hingað til. En ég tel mig vera bara á ansi góðum stað í dag“.

Þú ert búin að ná kröftum?

„Já ég er búin að komast út úr þessari kulnun, því skelfilega ástandi sem Egill Helgason talar um, það er bara helvítis melur að lifa í kvíða og ótta alltaf“

Og áfengisneyslan er ekki að hjálpa í því?

„Nei, fólk leitar ýmissa leiða til að jafna sig eða núllstilla sig eða komast út úr erfiðleikum og í byrjun notaði ég alltaf hreyfinguna og var algerlega á móti áfengi og ég hef aldrei haldið á logandi sígarettu til dæmis, ég var bara mjög góð fyrirmynd annarra. Síðan þegar börnin voru flutt að heiman þá taldi ég mér trú um það að ég gæti byrjað að drekka eitthvað og áður en ég vissi af þá þróaði ég með mér áfengissýki, til þess að róa mig en sjúkdómurinn einn og sér hefur leikið mig grátt“.

Viðtalið er sýnt kl.21 í kvöld og svo endursýnt. Þar ræðir Jónína einnig um reynsluna af átökunum í Krossinum sem ítrekað var fjallað um í fjölmiðlum; baráttu þar áður við sterk viðskiptaöfl og þegar fjölmiðlar tóku hana „af lífi“ fyrir mörgum árum eins og hún orðar það – í því ræðir Jónína líka um ábyrgð fjölmiðla og hvað hún telur sína eigin ábyrgð í þeim efnum.