Sjötugur karlmaður lést úr Covid-19 um helgina

Sjötugur karlmaður lést á Landspítalanum síðastliðinn laugardag vegna Covid-19. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Landspítalans. Alls hafa 37 látist hér á landi frá upphafi faraldursins.

Landspítali er sem fyrr á hættustigi og eru ellefu sjúklingar á Landspítalanum nú með Covid-19. Meðalaldur inniliggjandi er 64 ár.  Tveir eru á gjörgæslu, annar þeirra í öndunarvél.  

1.807 sjúklingar eru í COVID göngudeild spítalans, þar af 654 börn.

Frá upphafi fjórðu bylgju, 30. júní 2021, hafa verið 233 innlagnir vegna Covid-19 á Landspítala.

Smitum hefur fjölgað töluvert síðustu daga og greindust rúmlega 200 smit á laugardag. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir mun skila Willum Þór Þórssyni heilbrigðisráðherra minnisblaði með tillögum um sóttvarnaraðgerðir, en núgildandi takmarkanir renna úr gildi næstkomandi miðvikudag.