Tveir fræðsluþættir um heyrnina verða sýndir á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í kvöld klukkan 19:30 og 20:00, en þeir eru unnir í samvinnu við Heyrnar- og talmeinastöð ríkisins.
Alþjóðlegur dagur heyrnarinnar er í dag þar sem áhersla er lögð á mikilvægi þessa skilningarvits í daglegu lífi, en eins og vel kemur fram í þáttum kvöldsins, sem eru tveir að tölu, skiptir heyrnin sköpum í samskiptum fólks á öllum sviðum mannlífs og náttúruupplifunar. Fólk þarf aftur á móti ekki að örvænta þótt vart verði heyrnartaps, því jafnt aðgerðir og tækni geta leyst þann vanda án mikillar fyrirhafnar, oft og tíðum.
Í þáttum kvöldsins er rætt við fjölda sérfræðinga og skjólstæðinga um eðli hlustarinnar, aðgerðir og tækin sem geta bjargað heyrninni á öllum aldri, en rétt er að taka fram að þættirnir eru textaðir fyrir þá sem eru með bága heyrn.