Sjón hjólar í Jón Gunnars­son: „Þetta heitir ein­angrunar­búðir“

Rit­höfundurinn, Sigur­jón Birgir Sigurðs­son, betur þekktur undir lista­manns­nafninu Sjón, lætur Jón Gunnars­son dóms­mála­ráð­herra heyra það á Twitter.

Sjón hefur ekki verið þekktur fyrir að tjá sig mikið um pólitík í gegnum tíðina en frétt RÚV um að Jón vilj vera með lokaðar búðir fyrir hælis­leit­endur sem koma hingað til landsins en er synjað um hæli, hefur farið fyrir brjóstið á Sjón.

„Þetta heitir ein­angrunar­búðir á ís­­lensku. Hægri öfga­hyggjan er ekki á leiðinni til Ís­lands frá út­löndum eins og Katrín (Jakobs­dóttir) segist hafa á­hyggjur af, hún lifir nú þegar góðu lífi í ríkis­­stjórninni sem hún sjálf fer fyrir,“ skrifar Sjón og deilir hlekk á frétt RÚV.