Sjómaðurinn á Sighvati GK-57 sem saknað er heitir Ekasit Thasaphong og er fæddur árið 1980.
Hann kom ungur til Íslands og býr í Grindavík ásamt eiginkonu sinni og er þriggja barna faðir. Ekasit hefur lengst af starfað hjá Vísi hf.
Fram kemur að fjölskylda hans hafi öll verið mjög virk í samfélaginu í Grindavík. Því sé bærinn sleginn yfir fréttunum.