Sjokkeraður yfir svartri hafmeyju

Íslenskur kvikmyndaunnandi inni á Facebook hópnum Kvikmyndaáhugamenn segir að sín versta martröð hafi ræst með tilkomu Halley Bailey í hlutverki litlu hafmeyjunnar.

Færslan hefur vakið mikla athygli en hún var birt í morgun en alls hafa 272 skoðanaskipti átt sér stað undir færslunni. Þar skrifar netverjinn, íslenskur karlmaður að nafni Andri Einarsson:

„My worst nightmare came to a reality,“ og bætir við:

„þetta snýst ekki um húđlit but make the character right. Öll hatursorđræđa er ekki liđin.“

Leikkonan Halley Bailey sem leikur hafmeyjuna í myndinni sem kemur út á næsta ári og er endurgerð af teiknimyndinni er svört og dökkhærð. Upprunalega Aríel hafmeyja var teiknuð hvít og rauðhærð í teiknimyndinni frá 1989. Netverjar bregðast ókvæða við færslu Andra og saka hann um rasisma.

„Þú ert með hatur.. Augljóst hatur þegar þú segir "snýst ekki um húðlit but.." Og bannar öðrum að koma með hatursorðræðu. Stoppaðu núna,“ svarar Karen Helga honum nokkur.

„Fyrirgefđu, þađ er ekkert but.., hvernig dettur þér þađ í hug og þađ ert þú sem ákveđur ađ segja "snýst ekki um húđlit but.. þađ eru þín orđ ekki mín, ég hef alltaf sagt ađ ég hati engann en samt tönglast ég á því, þarf ég virkilega ađ brjóta þetta niđur til þess ađ þú skiljir hvađ ég á við.“

Þá rifja aðrir það upp að Andra hafi fundist það tiltökumál að lögregluforinginn James Gordon hafi verið leikinn af Jeffrey Wright í The Batman, sökum þess að hann er svartur.

Umræðan er ansi fjörug eins og má sjá á þræðinum.