Sjöfn Þórðar tekur yfir Instagram: Viltu þú vinna gjafabréf fyrir tvo?

Sjöfn Þórðardóttir, umsjónarkona þáttanna Matur og heimili, tekur yfir Instagram-síðu Hringbrautar í dag og veitir fólki innsýn í það sem gerist á bak við tjöldin í tökum á þættinum.

Þættirnir njóta töluverðra vinsælda en í þeim er meðal annars fjallað um matargerð, innanhússarkitektúr, hönnun og fjölbreyttan lífsstíl.

Í dag er Sjöfn í tökum í hinni glæsilegu Mathöll höfða þar sem hún kynnir sér alla 10 veitingastaðina þar og að auki ætlar hún að gefa 10 heppnum aðilum gjafabréf fyrir 2 á einum af veitingastöðum mathallarinnar. Sjöfn mun svo tilkynna vinningshafana í instastory Hringbrautar.

Leikreglur:

  1. Fylgdu Hringbraut (@hringbrauttv) og Mathöllinni höfða (matholl_hofda) á Instagram
  2. Segðu okkur í kommenti hér að neðan hvaða veitingastaði þú myndir vilja fá gjafabréf á og hverjum þú myndir bjóða með þér.