Lyfjastofnun hefur fengið sjö tilkynningar um aukaverkanir vegna bólusetningar gegn kórónaveirunni hér á landi, þar af ein alvarleg. Þetta kom fram á upplýsingafundi almannavarna í dag.
Um 5 þúsund manns voru bólusettir fyrir áramót hér á landi með bóluefni Pfizer. Alma Möller, landlæknir, sagði að hún hafi tekið stöðuna hjá Lyfjastofnun og heyrt þar af sjö tilvikum. „Ég kannaði það í morgun frá Lyfjastofnun og fékk þær upplýsingar að það hafi komið sjö tilkynningar og þar af hugsanlega ein alvarleg. En það var algjörlega óljóst með orsakasamband þar vegna undirliggjandi sjúkdóma.“
Ísland mun fá 50 þúsund skammta af bóluefni frá Pfizer fyrir lok mars. Von er á næsta skammti þann 21. janúar.