Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins ætla að leggja fram í dag á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur að Orkuveitunni verði gert að fylla án tafar Árbæjarlón. Morgunblaðið greinir frá.
Björn Gíslason er fyrsti flutningsmaður tillögunnar. Vísar hann til úrskurðar úrskurðarnefndar umhverfis-og auðlindamála frá því í október.
Þar sagði að tæmingin hefði falið í sér meiri háttar framkvæmd sem hefði haft áhrif á umhverfið og því hefði þurft að afla framkvæmdaleyfis. Því eigi að hlýta úrskurðinum.