Málefnaályktanir sem lagðar voru fyrir landsfund Sjálfstæðisflokksins komu fram tillögur um að ríkið selji fjölmörg fyrirtæki og eignir sem það á í dag.
Þetta kemur fram í fréttaskýringu Kjarnans en til tillögur að einkavæðingu í fjöldamörgum geirum voru ræddar. Þar á meðal í velferðarþjónustu, menntamálum og orkugeiranum svo lítið eitt sé nefnt. Það kemur kannski flestum ekki á óvart að einkavæðing sé ofarlega í huga Sjálfstæðismanna en margar hugmyndir eru þó forvitnilegar.
Landsfundur sjálfstæðismanna hefur nú ekki farið fram í fjögur og hálft ár og því greinilegt að ræða þurfti margar nýjar hugmyndir og ályktanir.
Eins og fram hefur komið seldi ríkið hluta af eign sinni í Íslandsbanka á síðasta ári en rætt var á landsfundi að klára þurfi þá sölu og að selja ætti eign ríkisins í Landsbankanum sömuleiðis.
Það sem athygli vekur eru hugmyndir sjálfstæðismanna um að rekstur ríkistúrvarpsins sé „að öllu leyti eða hluta betur komið í höndum einkaaðila.“
Þá var einnig rætt að RÚV bæri skilda til þess að fara af auglýsingamarkaði.
Þá var einnig nefnt að lækka þurfi gjaldheimtu á sjávarútveginn ásamt því að lækka skatta og leggja af bankaskatt.
Lækka ætti áfengisaldur niður í 18 ár og selja ÁTVR samhliða því að afnema einokunarstöðu ríkisins á sölu áfengis. Einnig var rætt um að selja fríhöfnina.
Í menntamálum var rætt um það að koma eigi börnum úr menntaskóla við 18 ára aldur og lagt til að auðvelda verði sveitarfélögum að útvista verkefnum til einkaaðila í leik og grunnskólum og að lengd grunnskóla verði svo stytt úr tíu árum í níu.
Lífeyrisaldur ætti svo að hækka í 70 ár að mati sjálfstæðismanna og að rýmka ætti heimildir þeirra sem hafa náð þeim aldri til að vinna hjá hinu opinbera.