Sjálf­stæðis­menn í hring­ferð hefna sín á Brynjari: „Mesti ó­­þverra­­skapurinn var þegar ég var í pissu­­stoppi“

Þing­flokkur Sjálf­stæðis­flokksins fer nú hringinn í kringum landið til að hitta kjós­endur og eru að­stoðar­menn, líkt og Brynjar Níels­son að­stoðar­maður dóms­mála­ráð­herra, með í för.

Brynjar hefur verið dug­legur að skrifa um ferðina á Face­book og oftar en ekki á kostnað sam­flokks­manna sinna.

„Ég er mjög ó­­vin­­sæll hjá sam­­ferða­­mönnum í hring­­ferðinni vegna skrifa minna hér á fés­bókinni.Telja mig skaða í­­mynd þeirra með raka­lausum þvættingi og lygum. Orka þeirra fer öll í að hefna sín á mér í stað þess að reyna að heilla kjós­endur,“ skrifar Brynjar.

„Þau hafa mútað bíl­­stjóranum til að þeyta bíl­flautuna í hvert sinn sem ég kem að rútunni í þeirri von að ég missi með­vitund. Mesti ó­­þverra­­skapurinn var þegar ég var í pissu­­stoppi skilinn eftir uppi á heiði í 45 metrum á sekúndu í hviðum. Sem betur fer bjuggu ein­hverjir af­kom­endur Ey­­vindar og Höllu þarna og komu mér til bjargar,“ skrifar Brynjar en eins og margir vita þá bregður Brynjar Níels­syni alveg ein­stak­lega mikið.

„Rétt er að upp­­­lýsa að dóms­­mála­ráð­herra hefur rekið mig sem að­­stoðar­mann, senni­­lega í tíunda sinn á einu ári. En ég er svo­lítið eins og Sól­veig Anna og hlusta ekkert á hann og fer bara mínu fram,“ skrifar Brynjar að lokum.