Sjálf­stæðis­flokkurinn stærstur: Fylgi VG undir 10 prósent

Sjálf­stæðis­flokkurinn mælist með mest fylgi stjórn­mála­flokka á Al­þingi, eða 24,0%. Þetta er sam­kvæmt niður­stöðum nýrrar könnunar MMR. Fylgi flokksins er ó­breytt frá síðustu mælingu MMR sem fram­kvæmd var í júní­mánuði.

Sam­fylkingin mælist næst með 14,9% fylgi, eða tæp­lega tveimur prósentu­stigum meira en við síðustu mælingu. Píratar eru skammt á eftir, fylgi flokksins mælist nú 14,3% og minnkar um rúmt prósentu­stig frá síðustu mælingu. Við­reisn mælist með 10,0% fylgi og jókst það um rúm­lega eitt og hálft prósentu­stig frá síðustu könnun.

Fylgi Vinstri grænna dalar frá síðustu könnun. Fylgi flokksins mælist nú 9,6% en mældist 10,8% í síðustu könnun. Mið­flokkurinn mælist með 8,0% fylgi en var með 8,4% fylgi í síðustu könnun. Fylgi Flokks fólksins mælist nú 4,8% en var 4,0% í síðustu könnun. Þá mælist Sósíal­ista­flokkur Ís­lands nú með 3,4% fylgi en í síðustu könnun var fylgi flokksins 5,1%.

Stuðningur við aðra flokka mældist 2,2% saman­lagt.

Stuðningur við ríkis­stjórnina mælist nú 50,1% og jókst um rúm­lega tvö prósentu­stig frá síðustu könnun, þar sem stuðningurinn mældist 47,7%.

Könnun MMR var fram­kvæmd dagana 26. ágúst til 2. septem­ber og var heildar­fjöldi svar­enda 929 ein­staklingar, 18 ára og eldri.