Sjálfstæðisflokkurinn í frjálsu falli í borginni: Meirihlutinn bætir við sig manni

Samkvæmt nýrri könnun mælist Sjálf­stæðis­flokkurinn að­eins með 16 prósenta fylgi í Reykjavík. Sam­fylkingin mælist stærsti flokkurinn og Píratar næst­stærstir. Nú­verandi borgar­stjórnar­meiri­hluti bætir við sig einum manni og myndi fá 13 en minni­hluta­flokkarnir 10.

Fréttablaðið greinir frá þessu í dag.

Fylgi Sjálf­stæðis­flokksins í Reykja­vík heldur á­fram að lækka sam­kvæmt nýrri könnun Prósents og er nú þriðji stærsti flokkurinn í borginni. Fylgið mælist nú 16,2 prósent með vikmörkum upp á 2,6 prósent.

Flokkurinn fékk 30,8 prósent í síðustu borgar­stjórnar­kosningum. Í síðustu könnun Prósents, frá 28. apríl síðast­liðnum, fékk hann 19,4 prósent. Verði þetta raunin á kjör­dag missir Sjálf­stæðis­flokkurinn 4 af 8 borgar­full­trúum sínum.

Sam­fylkingin mælist nú á­berandi stærsti flokkurinn í borginni með 26,7 prósenta fylgi og vikmörk upp á 3,3 prósent. Þetta er yfir kjör­fylgi flokksins í síðustu kosningum, 25,9 prósent, og í síðustu könnun fékk flokkurinn 23,3 prósent. Miðað við þetta heldur Sam­fylkingin sínum 7 full­trúum.

Næst stærsti flokkurinn í borginni eru Píratar sem mælast nú með 17,9 prósent, meira en 10 prósentum meira en í síðustu kosningum og 2 prósentum meira en í síðustu könnun. Vikmörkin eru 2,8 prósent. Sam­kvæmt þessu tvö­falda Píratar sinn full­trúa­fjölda, fara úr 2 í 4.

Nánar á vef Fréttablaðsins.