Sjálfstæðisflokkurinn á eftir að standa við loforðið: Ekki fengið krónu til baka

Svokallaðir frelsisborgarar Sjálfstæðisflokksins vöktu talsverða athygli í kosningabaráttunni sem lauk á dögunum. Hamborgararnir voru veittir hinum ýmsu hópum úr grillvagni á vegum flokksins sem ferðaðist víða. Einn áfangastaðurinn var KR heimilið, en sú ferð átti eftir að valda usla, en borgarar Sjálfstæðismanna spilltu fyrir veitingasölu körfuboltastúlkna sem voru að safna fyrir æfingaferð til Fíladelfíu í Bandaríkjunum í sumar.

Greint var frá því í síðustu viku að Sjálfstæðisflokkurinn ætlaði sér að bæta tjónið. Fréttablaðið greindi frá því í dag að körfuboltastelpurnar hefðu hvorki fengið bætur, né heyrt aftur frá Sjálfstæðisflokknum þrátt fyrir loforð um annað.

Stein­grímur Óli Einars­son, meðlimur í foreldrafélagi körfuboltastelpnanna segir í samtali við Fréttablaðið að verulega muni um þetta fé sem fór forgörðum.

„Þetta virðist vera bara sú hryggðar­mynd stjórn­mála­manna að skreyta sig með skraut­fjöðrum í kosninga­bar­áttu sem eru síðan allar foknar út í veður og vind að kosningum loknum“, segir hann.

Sandra Hlíf O­cares, sem skipaði 8. sæti hjá Sjálf­stæðis­flokknum í borginni, átti að vera tengi­liður flokksins við for­eldra­fé­lagið. „Það var sendur tölvu­póstur á hana tólfta þessa mánaðar og honum var ekki svarað, ekki einu sinni stað­festing á mót­töku,“ segir Stein­grímur sem segir hana einnig hafa hundsað skila­boð á Face­book.

Í samtali við Fréttablaðið sagði Sandra: „Ég hef ekki fengið neina fyrirspurn. Við vorum að klára kosningar og þetta er eitt af málunum sem við þurfum að ganga frá,“ Þá sagði hún flokkinn hafa langan lista af málum sem þau hafa þurft að klára eftir kosningarnar og þetta sé eitt af þeim.