Sjálfstæðisflokkur langstærstur: Framsókn á flugi en Miðflokkurinn kominn á hættusvæði

Sjálfstæðisflokkur er nú sem fyrr stærsti flokkur landsins, samkvæmt nýrri könnun MMR, og mælist fylgi flokksins nú 24,6%. Flokkurinn bætir við sig tveimur prósentustigum frá síðustu könnun, sem framkvæmd var 11. til 20. maí.

Enginn flokkur kemst nálægt því að ógna Sjálfstæðisflokknum, en Píratar eru næststærsti flokkur landsins með 13,5% fylgi. Bætir flokkurinn við sig frá síðustu könnun þar sem fylgið mældist 11,0%. Framsóknarflokkurinn kemur þar á eftir með 12,5% fylgi sem er töluverð aukning frá síðustu könnun þegar fylgið mældist 9,6%. Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 50,2% og minnkaði um tæplega þrjú prósentustig frá síðustu könnun, þar sem stuðningur mældist 53,0%.

Athygli vekur að VG, flokkur Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra sem er jafnframt langvinsælasti ráðherrann, mælist aðeins með 11,1% fylgi. Í síðustu könnun mældist það 14,1%. Viðreisn er nú komin við hlið VG með 11,0% fylgi en í síðustu könnun mældist það 9,7%. Samfylkingin er svo með 10,9% fylgi en í síðustu könnun var það 12,1%.

Það vekur einnig athygli að fylgi Miðflokksins er komið niður í 6,5% en í síðustu könnun var það 7,9%. Hæst fór stuðningur við Miðflokkinn í 16,8% í könnun MMR í nóvember 2019.

Sósíalistaflokkur Gunnars Smára Egilssonar kæmist inn á þing ef kosið yrði í dag. Fylgi flokksins mælist 5,6% en í síðustu könnun var það 6,7%. Flokkur fólksins myndi aftur á móti þurrkast út en fylgið við hann mælist nú 2,8%. Í síðustu könnun var það 4,2%.

Könnunin var framkvæmd 25. maí - 1. júní 2021 og var heildarfjöldi svarenda 951 einstaklingur, 18 ára og eldri.