Sjálfstæðisflokkur á flugi en Framsókn hrapar – Þrír mánuðir til kosninga

Sjálfstæðisflokkurinn er á mikilli siglingu nú þegar aðeins þrír mánuðir eru til kosninga, en samkvæmt nýrri könnun MMR mælist fylgi hans nú 27,0%. Það er rúmlega tveimur prósentustigum meira en í síðustu mælingu MMR sem gerð var dagana 25. maí til 1. júní.

Þá vekur athygli að Flokkur fólksins mælist nú inni eftir heldur dapurt fylgi í skoðanakönnunum að undanförnu. Mælist fylgi hans nú 5,5% en var 2,8% í síðustu könnun.

Samstarfsflokkar Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórn eru í misjöfnum málum milli kannanna. Fylgi Vinstri grænna mælist nú 12,4% en var 11,1% í síðustu könnun. Framsóknarflokkurinn dalar hins vegar talsvert og er fylgi hans nú 8,8% en var 12,5% í síðustu könnun.

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 53,7% og jókst um rúmlega þrjú prósentustig frá síðustu könnun, þar sem stuðningur mældist 50,2%.

Píratar eru næststærsti flokkur landsins og mælist fylgi hans nú 13,1% en var 13,5% í síðustu könnun. Samfylkingin er á svipuðu róli og áður; fylgi hans er nú 11,2% en var 10,9% í síðustu könnun. Viðreisn dalar talsvert milli kannanna. Fylgi flokksins er nú 7,8% en var 11,0% í síðustu könnun.

Miðflokkurinn bætir örlítið við sig og mælist fylgi hans nú 7,3% en var 6,5% í síðustu könnun. Þá mun Sósíalistaflokkurinn koma þingmönnum að en fylgi hans nú er 5,3% en var 5,6% í síðustu könnun. Stuðningur við aðra flokka mældist 1,6% samanlagt.