Sjáðu við­brögðin þegar Ey­þór var spurður hvort hann ætlaði að skila milljónunum frá Sam­herja

Segja má að hálf­gert fát hafi komið á Jórunni Pálu Jónas­dóttur, vara­borgar­full­trúa Sjálf­stæðis­flokksins, þegar hún og Ey­þór Arnalds, odd­viti Sjálf­stæðis­flokks í borgar­stjórn, svöruðu spurningum frá al­menningi á Face­book-síðu Varðar, full­trúa­ráðs Sjálf­stæðis­fé­laganna í Reykja­vík, í há­deginu í dag.

Það var Óskar Steinn Jónínu­son Ómars­son, varaforseti Ungra jafnaðarmanna og fyrr­verandi ritari Sam­fylkingarinnar sem varpaði um­ræddri spurningu fram. Svo virðist vera sem Jórunn hafi ekki alveg verið búin undir því að fá svona erfiða spurningu. Spurning Óskars var svona:

„Til Ey­þórs. Hefurðu hugsað þér að skila 255 milljónunum sem þú fékkst frá Sam­herja, eða a.m.k skýra frekar út fyrir kjós­endum í hvaða til­gangi fyrir­tækið veitti þér þessa fyrir­greiðslu?“

Eins og sést á með­fylgjandi mynd­bandi byrjaði Jórunn að lesa spurninguna en þegar hún áttaði sig á inni­haldi hennar hætti hún snar­lega við. Ey­þór greip þá inn í og svaraði spurningunni en þó ekki efnis­lega. „Það er verið að inn­leiða nýjar reglur fyrir borgar­full­trúa og em­bættis­menn um fjár­hags­lega hags­muni. Við höfum for­ystu um að em­bættis­menn sem eru að taka á­kvarðanir geri grein fyrir sínum hags­munum. Það hefur ekki verið áður,“ sagði Ey­þór meðal annars.

Stundin greindi frá því í októ­ber í fyrra að fjár­festingar­fé­lag Sam­herji hefði af­skrifað stóran hluta 225 milljóna króna láns sem Ey­þór fékk fyrir hluta­bréfum í Morgun­blaðinu.

Myndbandið má sjá hér að neðan, en heyra má Jórunni bera upp spurninguna þegar 6:50 eru liðnar.

Posted by Vörður Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík on Miðvikudagur, 22. apríl 2020