Óhætt er að segja að fjölmargir Íslendingar hafi sýnt egypsku Khedr-fjölskyldunni stuðning undanfarna daga, sérstaklega eftir að stoðdeild ríkislögreglustjóra ákvað að lýsa formlega eftir fjölskyldunni í gærkvöldi.
Eins og flestir vita stóð til að framfylgja brottvísun fjölskyldunnar síðastliðinn miðvikudag. Lögreglan kom hins vegar að tómum kofanum enda var fjölskyldan farin í felur.
Eftir að lögreglan lýsti eftir fjölskyldunni hefur myllumerkið ÞauEruHjáMér verið vinsælt á Twitter og á Facebook. Þá hefur fólk verið hvatt til að senda tölvupóst á stoðdeild ríkislögreglustjóra og virðast margir hafa brugðist við því ákalli.
Í þeim hópi er Sóley Tómasdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi, sem birti skjáskot af tölvupósti sem stílaður var á stoðdeild ríkislögreglustjóra.
Í töluvpóstinum segir Sóley:
Góðan dag.
Ég velti fyrir mér, þar sem ég bý í Hollandi þar sem Anna Frank bjó í seinni heimsstyrjöld, hvort það væri ekki ráð að leita hreinlega í Önnu Frank safninu í Amsterdam. Það er líklegt að fólk sem er í felum nýti staði sem áður hafa verið nýttir - búið að byrgja alla glugga og svona – og allt til alls. Ef ég væri þið myndi ég senda fulltrúa á staðinn til að vera viss um að það sé ekki enn eina ferðina verið að hýsa þar fólk sem yfirvöld þurfa að finna.
Kveðja,
Sóley.
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, leikkona og ritstjóri Kvennablaðsins, hvetur til borgaralegrar óhlýðni. Hún segir á Facebook-síðu sinni:
„Nú þurfum við að vera óþekk! Nú hafa yfirvöld auglýst formlega eftir egypsku fjölskyldunni. Ég vil hvetja til borgaralegrar óhlýðni við þessar einstöku aðstæður og vara fólk við því að gerast leynilöggur og uppljóstrarar fyrir yfirvöld. Ég held að með því að segja til ferða þessa fólks eða dvalarstaðar sé viðkomandi að valda sjálfum sér ævarandi sálarskaða. Því það að svíkja þetta fólk í sinni neyð eru svik við mennskuna sjálfa. Slíkur skaði er aldrei aftur tekinn og veldur öllum manneskjum sem á annað borð finna til samkenndar með öðrum óbætanlegu tjóni og lífstíðarharmi sem upprætist aldrei. Stundum getur maður nefnilega hjálpað öðrum og bætt heiminn með því að þegja sem fastast. Það reynist mörgum erfitt en þögnin er stundum bæði grjóthart vopn og verndandi afl.“
Hér að neðan má sjá nokkrar færslur á Twitter til stuðnings fjölskyldunni:
Við erum öll almannavörn pic.twitter.com/Mf5ByLWR9C
— Guðmundur Jörundsson (@gudmundur_jor) September 22, 2020
Þau eru hjá mér! Þau eru hjá okkur öllum! Við erum nefnilega öll með egypskt barn í hjartanu! Endilega látið lögregluna vita í [email protected] 🙂 https://t.co/mAMzt4v18Q
— Thorarinn Leifsson (@totileifs) September 22, 2020
Þau eru hjá mér á Akureyri pic.twitter.com/5aAbvGHNeT
— Eydal (@ageydal26) September 21, 2020
Þau eru hjà mér
— Konan í blàa húsinu 📪 (@gilitrutt) September 21, 2020
Þau eru líka hjá mér
— þorgerður (@thorgerdur5) September 21, 2020
Yfirvöld lýsa formlega eftir egypsku fjölskyldunni. Það þarf ekkert að leita. Þau eru hjá mér. #þaueruhjámér https://t.co/CZCM0xddCk
— Svala Jonsdottir (@svalaj) September 21, 2020