Sjáðu þegar Guðmundur Felix sest undir stýri, setur í gang og skiptir um gír

Guðmundur Felix Grétarsson, sem fékk grædda á sig handleggi og axlir fyrr á þessu ári, er í einlægu viðtali í helgarblaði Fréttablaðsins.

Þeir sem hafa fylgst með bataferli Guðmundar hafa eflaust tekið eftir því hversu jákvæður hann er og er óhætt að segja að batinn hafi verið skjótari en jafnvel bjartsýnustu menn áttu von á.

Guðmundur nefnir dæmi um þetta í viðtalinu og segir:

„Það eru þrír læknar yfir þessu 50 manna teymi. Ég hitti tvo þeirra um daginn og sýndi þeim fingurna hreyfast. Þeir skríktu bara eins og smástrákar, tóku upp símana og tóku myndbönd, fannst þetta alveg frábært.“

Í viðtalinu á vef Fréttablaðsins má sjá magnaða auglýsingu þar sem Guðmundur Felix sýnir framfarirnar svart á hvítu. Þar situr hann undir stýri bifreiðar, setur í gang og skiptir um gír. Myndbandið má sjá hér að neðan.