Sjáðu Selenskí gera grín að Ís­landi: „Orð eins og Snæ­fells­jökull og Eyja­fjalla­jökull gera mig orð­lausan“

Volodomír Selenskí, for­seti Úkraínu, var þekktur grín­isti í heima­landinu áður en hann varð forseti árið 2019. Ofan á það lék hann í sjón­varps­þáttunum Þjónn fólksins sem fjalla um kennara sem verður óvænt for­seti Úkraínu.

Selenskí var einnig hand­rits­höfundur þáttanna en í einum þættinum kemur Ís­land fyrir er Yev­hen Koskovy, í hlut­verki utan­ríkis­ráð­herrans Serhi­y Muk­hin, þarf að eiga við sendi­nefnd frá Ís­landi er ríkis­stjórnin reynir að liðka fyrir inn­göngu Úkraínu í Schen­gen-sam­bandið sem af ein­hverjum á­stæðum Ís­land vill ekki í þáttunum.

Það er ljóst að hand­rits­höfundur veit þó nokkuð um Ís­land þar sem utan­ríkis­ráð­herrann reynir að tengja við ís­lensku sendi­nefndina með því að reyna finna sam­eigin­lega fleti milli landanna tveggja og talar um ís­lensk nöfn, eld­fjöll og fót­bolta.

Hægt er að sjá brot úr þættinum hér að neðan sem voru sýndir á árunum 2015 til 2019 í Úkraínu áður en Selenskí fór sjálfur í fram­boð til for­seta.

Það þarf að smella á CC til að fá enskan texta.