Sjáðu myndirnar: Vinsamlegast mokið frá sorptunnum!

Óhætt er að segja að starfsmenn í sorphirðu á höfuðborgarsvæðinu hafi unnið við erfiðar aðstæður síðustu daga vegna mikils fannfergis. Meðfylgjandi eru myndir sem sýna að víða er pottur brotinn þegar kemur að því að moka frá sorptunnum.

Í tilkynningu sem borgin sendi frá sér í dag kemur fram að sorphirða sé á eftir áætlun vegna aðstæðna. Nauðsynlegt sé að huga að greiðu aðgengi að tunnum til að tryggja að sorphirða geti farið fram.

„Íbúar eru því beðnir um að moka snjó frá sorptunnum, geymslum og skýlum og gæta að því að gönguleið sé greið. Nauðsynlegt er að hreinsa snjó og klaka og hálkuverja gönguleiðir. Til dæmis þarf að gæta að því að hægt sé að opna þau hlið og hurðir sem liggja að tunnunum. Líka er hætta á því að hurðir og tunnur hafi frosið fastar.“

Tekið er fram að þar sem er ómokað og starfsfólk kemst ekki að tunnum geti svo farið að sleppa þurfi að tæma tunnurnar. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum mætir starfsfólk sorphirðunnar oft erfiðum aðstæðum við vinnu sína.