Sjáðu myndirnar: Ólína rölti um miðbæinn og þetta blasti við hvert sem litið var

„Ég rölti stuttan hring í miðbænum í fyrrakvöld. Þetta og annað álíka blasti við augum hvert sem litið var,“ segir Ólína Þorvarðardóttir, rithöfundur, fyrrverandi þingmaður og núverandi deildarforseti félagsvísindadeildar við Háskólann á Bifröst.

Ólína birtir á Facebook-síðu sinni myndir frá göngutúrnum en á þeim má sjá fjölda veitingastaða sem bera erlend nöfn.

Umræða um þetta hefur verið nokkuð fyrirferðarmikil að undanförnu og sagðist Ármann Jakobsson, prófessor í íslensku og formaður íslenskrar málnefndar, vera þeirrar skoðunar að innleiða ætti sektarákvæði fyrir brot gegn lögum um stöðu íslenskunnar.

„Það kostar ekkert að brjóta þessi lög og þar af leiðandi eru þau brotin,“ sagði Ármann á Morgunvaktinni á Rás 1 í síðustu viku.

Ólína segist taka heilshugunar undir með Ármanni að virkja þurfi lögin til verndar íslenskri tungu.

„Það þarf að, setja inn í þau viðurlög við brotum, því að óbreyttu (og augsýnilega) tekur enginn mark á þeim. Á meðan heldur okkar ástkæra ylhýra áfram að leysast upp og renna saman við enskuna.“

Færslu Ólínu má sjá hér að neðan og þar má einnig sjá myndir sem Ólína tók.