Sjáðu myndirnar er Eliza Reid átti einka­fund með Biden hjónum í Hvíta húsinu

Eliza Reid, for­seta­frú Ís­lands er nú stödd í höfuð­borg Banda­ríkjanna, Was­hington D.C., þar sem hún átti einka­fund með Joe Biden, for­seta Banda­ríkjanna og Jill Biden, for­seta­frú Banda­ríkjanna, í Hvíta húsinu.

Til­efni fundarins var sér­stakur við­burður í Hvíta húsinu tengdum banda­ríska jafn­launadeginum sem var í dag en á þeim degi er vakin at­hygli á að­gerðum til að upp­ræta launa­mun kynjanna.

Eliza fór því yfir stefnu Íslands í jafnréttismálum og aðgerðir hér heima með þeim hjónum.

Síðar í vikunni mun Eliza taka þátt í land­kynningar­há­tíðinni Ta­ste of Iceland sem fer fram í höfuð­borginni daganna 17. – 20. mars.

Eliza átti einkafund með Biden hjónum.
Fréttablaðið/Aðsend mynd
Það fór vel á milli Elizu og Jill og Joe Biden.
Fréttablaðið/Aðsend mynd