„Smá tár á sunnudagsmorgni,“ sagði leikkonan Edda Björgvinsdóttir á Facebook-síðu sinni í morgun á sama tíma og hún deildi stuttmynd eftir tvítugan kvikmyndagerðarmann frá Íran sem unnið hefur til verðlauna fyrir áhrifaríka mynd sína.
Stuttmyndin er aðeins ein mínúta að lengd en sýnir svo ekki verður um villst hvað kvikmyndaformið getur komið sterkum skilaboðum til skila á skömmum tíma. Myndin, sem er eftir Syed Mohammad Reza Kheradmand, vann til verðlauna á Luxor-kvikmyndahátíðinni árið 2019 og þykir einstaklega falleg.
Í stuttu máli segir myndin frá eldri hjónum sem eru stopp á rauðu ljósi og fara saman með ljóð persneska skáldsins Hafezar. Við hlið þeirra kemur bíll sem í eru öllu yngri hjón en andrúmsloftið í bifreið þeirra er öllu alvarlegra en í bíl eldri hjónanna.
Þýða mætti heiti myndarinnar á íslensku sem „fimmtudagsfundurinn“ sem er vísun í þá írönsku hefð að þann dag heimsækir fólk grafir ástvina sinna. Eldri maðurinn í bílnum er á leiðinni með blóm að gröf eiginkonu sinnar og því má í raun segja að konan við hlið hans í bílnum sé vofa, eða ímyndun í það minnsta.
Boðskapur myndarinnar er sá að ástin getur stuðlað að sáttum og er í raun algjört kraftaverkameðal. Myndina má sjá hér að neðan og er hún vel þess virði að horfa á.