Sjáðu Myndbandið: „Áhættuatriði uppá líf og dauða að sækja í póstboxin í Smáralind“

Baráttukonan Þórhildur Gyða Arnarsdóttir sýndi frá aðstæðum sem gætu verið nokkuð hættulegar við Smáralind í dag.

Svo virðist sem Þórhildur hafi verið að sækja sendingu úr póstkassa við verslunarmiðstöðina Smáralind í Kópavogi, en tekið eftir því að fyrir ofan kassann hengu mörg grýlukerti.

„Áhættuatriði uppá líf og dauða að sækja í póstboxin í Smáralind…“ skrifaði hún í færslu á Twitter-síðu sinni.

Til allrar hamingju staðfesti Þórhildur Gyða í athugasemdum við færsluna að heppnast hafi að ná í póstinn slysalaust.