Sjáðu mynd Hall­dórs í Frétta­blaðinu sem fékk Vig­dísi til að hlæja upp­hátt

„Nú hló ég upp­hátt,“ segir Vig­dís Hauks­dóttir, borgar­full­trúi Mið­flokksins, á Face­book-síðu sinni í morgun og deilir um leið skop­mynd Hall­dórs Baldurs­sonar í Frétta­blaðinu í dag.

„Alltaf gaman að lenda í þessum dálki,“ segir Vig­dís um myndina sem má sjá hér að neðan.

Vig­dís var sem kunnugt er þulur í um­deildu mynd­bandi hags­muna­hópsins Björgum mið­bænum þar sem því var meðal annars haldið fram að Dagur hefði keypt þrjú bíla­stæði af borginni án út­boðs við heimili sitt. Það var ekki rétt því Dagur og fjöl­skylda hans keyptu tvö stæði af ná­grönnum sínum fyrir um ára­tug.

Mynd Hall­dórs má sjá hér að neðan: