„Er ríkið ekki einfaldlega að okra á ferðamanninum?“ spyr Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónus, í samtali við Fréttablaðið í dag.
Blaðið birtir athyglisverðan samanburð á verði sælgætis í Leifsstöð, en almenningur hér á landi og aðrir ferðamenn sem eiga leið um flugstöðina virðast ekki njóta þess að þær vörur sem ríkið selur í Fríhöfninni bera engan virðisaukaskatt.
Staðreyndin er nefnilega sú að í mörgum tilvikum er mun dýrara að kaupa þær í Fríhöfninni en í einkareknum lágvöruverðsverslunum á borð við Bónus, Krónuna og Costco. Þær verslanir, ólíkt Fríhöfninni, þurfa að bæta opinberum álögum ofan á verð sitt en samt er það ódýrara en í Fríhöfninni.
„Nafnið gefur fólki til kynna að það sé að gera góð kaup, en það er öðru nær þegar raunveruleikinn er skoðaður,“ segir Guðmundur.
Í frétt Fréttablaðsins kemur fram að könnunin hafi verið gerð í ágúst á tíu algengum sælgætistegundum í Leifsstöð. Verðið var síðan borið saman við sömu vörur, eða mjög sambærilegar, í fyrrgreindum búðum; Bónus, Krónunni og Costco. Samkvæmt úttekt Fréttablaðsins er sælgætið í öllum tilvikum dýrara í verði í Fríhöfninni en í bænum. Munurinn getur verið mikill, eða allt að fimmtíu prósent og á við í tilviki þrjátíu stykkja pakkningar af Extra-tyggjói.
Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, segir að þetta sé gífurleg álagning af hálfu hins opinberlega og enn ein gildran sem neytendur á Íslandi þurfa að gæta sín að falla ekki ofan í.