Sjáðu muninn á launum starfsmanna Play og Icelandair

ASÍ hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem sjá má samanburð á launakjörum hjá flugfélögunum Play og Icelandair. Töluverð umræða hefur verið um launakjör starfsmanna Play undanfarna daga og hefur ASÍ meðal annars hvatt fólk til að sniðganga Play því fyrirtækið ætli sér að undirbjóða laun starfsfólks.

Play hefur brugðist harkalega við þessu og sagði Birgir Jónsson, forstjóri félagsins, í tilkynningu til Play að ASÍ væri að ganga erinda Flugfreyjufélags Íslands. Hótaði hann ASÍ málsókn vegna þessa.

Nú hefur ASÍ brugðist við með yfirlýsingu þar sem borin eru saman launakjör Play og Icelandair.

„Vegna fullyrðinga Play um launakjör starfsfólks samkvæmt samningi við ÍFF birtum við hér samanburð á launakjörum flugfreyja og -þjóna hjá Icelandair annars vegar og Play hins vegar. Tekið er dæmi af nýliða hjá hvoru flugfélagi fyrir sig og fyrstu freyju eftir 5 ára starsfaldur. Miðað er við 85 flugtíma,“ segir í yfirlýsingu ASÍ.

Tekið er fram að einungis sé um að ræða launatölur en til viðbótar megi hvergi finna í samningi Play ákvæði um framlög til starfsendurhæfingar, í orlofssjóð, starfsmenntasjóð eða sjúkrasjóð, sem séu lykilþættir í kjörum launafólks.

„Lífeyrisgreiðslur virðist einungis eiga að greiða af grunnlaunum og einungis eru tryggðar greiðslur uppá 12% af grunnlaunum í lífeyrissjóð sem er afturför frá almennum kjarasamningum. Þá gera samningarnir ekki ráð fyrir réttindum til fjarvista vegna veikinda barna. Ekki er kveðið á um sérstakar greiðslur fyrir varavaktir eða námskeiðssetu. Að auki eru greiddir dagpeningar lægri hjá Play en Icelandair en þeir teljast ekki til heildarlauna og eiga að mæta útlögðum kostnaði,“ segir í tilkynningu ASÍ en samanburðinn má sjá hér að neðan.

Þá er tekið fram í yfirlýsingu ASÍ að félagið ÍFF beri öll merki þess að vera svokallað „gult stéttarfélag“ og slík félög standi alla jafna utan heildarsamtaka launafólks og ganga jafnvel erinda atvinnurekenda og gegn hagsmunum og lágmarskjörum launafólks.

„Óljóst er hvernig samningurinn er tilkominn, hver undirritar og hvernig hann var samþykktur. Forsvarsmenn Play virðast svo telja það sitt hlutverk að ákveða í hvaða stéttarfélagi starfsfólk þeirra er en það brýtur í bága við lög. Stofnun „gulra félaga“ hefur víða um heim reynst liður í að brjóta skipulagða verkalýðshreyfingu á bak aftur. Heildarsamtök launafólks munu ekki sitja þegjandi hjá þegar slík aðför er gerð að réttindum almennings á Íslandi. Play ætti að sjá sóma sinn í að „drífa sig út“ og gera raunverulegan kjarasamning við stéttarfélag launafólks.“