Sjáðu magnað mynd­skeið af rennandi hrauninu undir því storknaða

Magnað mynd­skeið af rennandi hrauni í Mera-og Geldinga­dölum gengur nú um eins og eldur í sinu um inter­netið. Í mynd­bandinu sem er tekið upp á dróna má sjá hvernig hraunið lekur undir storknuðu hrauni.

„Hita­stigið á kvikunni sem er að koma upp í gígnum er um 1200 gráður,“ sagði Þor­valdur Þórðar­son, prófessor í eld­fjalla­fræði við Ríkis­út­varpiðí gær vegna málsins. Þor­valdur segir á­huga­vert að sjá að þó að hraunið í Mera­dölum sé ekki jafn heitt og Geldinga­dölum sé heitur kjarni undir mest­allri hraun­breiðunni sem hefur safnast fyrir í lægðinni.

„Þannig að það er eins og það sé bara vökvi, hraunkjarni, þarna undir skorpunni sem nær yfir stóran hluta ef ekki alla Mera­dali, sem skýrir af hverju hraunið er svona slétt.“

Eins og gefur að skilja er því stór­hættu­legt að rölta um á hrauninu. Hraunið enda á fullri ferð fyrir neðan storknað hraunið eins og sést í þessu ó­trú­lega mynd­skeiði hér að neðan.