Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur fengið ansi fjölbreyttar gjafir á síðustu tveimur árum. Nú hafa verið birtir listar yfir þessa muni.
Fjallað er um málið í Fréttavaktinni á Hringbraut og í Fréttablaðinu. Þar má sjá listana sem um ræðir.
Á meðal gjafa sem Katrín hefur fengið er gylltur platti, hnífar frá Grænlandi og Indlandi, bangsa, vín og klæðnað.
Sumir sem hafa gefið Katrínu gjafir eru heimsfrægir einstaklingar, eins og Nancy Pelosi, fyrrverandi forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings og Sanna Marin, forsætisráðherra Finnlands.
„Þetta eru nú mjög oft einhvers konar skrautmunir eða bækur, þannig það er bara hægt að kynna sér það,“ segir hún aðspurð um hvort þessir munir séu verðmætir.
Hægt er að lesa nánar um málið og sjá listann á vef Fréttablaðsins.