Sjáðu laun ráðherrana – Lilja óvænt sú launahæsta

Lilja Dögg Al­freðs­dóttir var launa­hæsti ráð­herra ríkis­stjórnarinnar í fyrra sam­­kvæmt á­lagninga­skrá Ríkis­skatt­­stjóra sem lögð hefur verið fram. Fréttablaðið og DV greina frá þessu en laun Lilju í fyrra námu tæpum 2,7 milljónum króna. Lilja var þá mennta- og menningarmálaráðherra námu árslaunin um 32 milljónum króna. Með næst­hæstu launin var for­sætis­ráð­herra, Katrín Jakobs­dóttir, með tæpar 2,7 milljónir líka en á munurinn á launum hennar og Lilju var alls 25. 352 krónur.

Tveir ráðherrar með undir tvær í mánaðarlaun

Á eftir Katrínu er svo Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra með rúmar 2,4 milljónir í mánaðar­laun sem fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og þar af leiðandi með um 29 milljónir í árs­laun. Á eftir þeim koma svo ráð­herrarnir með um og yfir tvær milljónir í mánaðar­laun en af þeim ráð­herrum sem sitja núna skera þeir Willum Þór Þórs­son og Jón Gunnars­son sig úr með rúma 1,5 milljón í mánaðar­laun.

Taka verður til greina að þeir tóku við em­bætti ráð­herra í nóvember og því má gera ráð fyrir því að laun þeirra beggja hafi hækkað tölu­vert frá því.

Hér að neðan má sjá mánaðar­laun ráð­herra í fyrra eins og þau eru skráð í á­lagningar­skránna:

  • Lilja D. Al­freðs­dóttir menningar- og ferða­mála­ráð­herra var með 2.695.920 krónur í mánaðar­laun.
  • Katrín Jakobs­dóttir for­sætis­ráð­herra var með 2.670.568 krónur í mánaðar­laun.
  • Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra var með 2.421.226 krónur í mánaðar­laun.
  • Guð­laugur Þór Þórðar­son um­hverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra var með 2.399.866 krónur í mánaðar­laun.
  • Sigurður Ingi Jóhanns­son inn­viða­ráð­herra var með 2.329.764 krónur í mánaðar­laun.
  • Svan­dís Svavars­dóttir mat­væla­ráð­herra var með 2.312.823 krónur í mánaðar­laun.
  • Guð­mundur Ingi Guð­brands­son fé­lags- og vinnu­markaðs­ráð­herra var með 2.216.871 krónur í mánaðar­laun.
  • Þór­dís Kol­brún R. Gylfa­dóttir utan­ríkis­ráð­herra var með 2.131.837 krónur í mánaðar­laun.
  • Ás­laug Arna Sigur­björns­dóttir vísinda,- iðnaðar- og ný­sköpunar­ráð­herra var með 2.039.771 krónur í mánaðar­laun.