Sjáðu hvaða breytingar taka gildi á mánudag: Svandís boðar miklar tilslakanir

Fjöldatakmarkanir fara úr 20 í 50 manns frá næstkomandi mánudegi, samkvæmt ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra. Breytingarnar eru í samræmi við tillögur Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis.

Í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu kemur jafnframt fram að sund- baðstaðir og líkamsræktarstöðvar megi frá og með mánudeginum taka á móti 75% af leyfilegum hámarksfjölda gesta og þá verði hámarksfjöldi þátttakenda í íþróttum og sviðslistum 75 í hverju hólfi eða á sviði. Þá fer hámarksfjöldi gesta á sitjandi viðburðum úr 100 í 150 manns.

Fleiri breytingar verða gerðar og verður til dæmis opnunartími veitingastaða lengdur um klukkustund. Þá verða gerðar ýmsar tilslakanir á skólastarfi. Breytingarnar sem taka gildi frá og með mánudeginum eiga að gilda í rúmar tvær vikur.

Í minnisblaði Þórólfs til Svandísar kemur fram að ýmsar aðgerðir á landamærum sem gripið var til vegna hópsýkinga, sem í upphafi voru raktar til ferðamanna á landamærum sem ekki héldu reglur um sóttkví og/eða einangrun, hafi skilað árangri. Fá smit hafi greinst utan sóttkvíar undanfarna daga og því megi ætla að takist hafi að ná utan um fyrrgreind hópsmit. Ekki sé þó hægt að segja að veiran sem veldur COVID-19 hafi verið upprætt úr samfélaginu.

Breytingarnar sem taka gildi á mánudaginn eru eftirfarandi:

Almennar fjöldatakmarkanir fara úr 20 í 50 manns. Börn fædd 2015 og síðar verði áfram undanþegin.

Nándarregla verði áfram almennt tveir metrar.

Grímuskylda og leiðbeiningar um grímunotkun óbreyttar. Börn fædd 2005 og síðar undanþegin grímuskyldu.

Sund- og baðstaðir, skíðasvæði, tjaldsvæði og söfn opin fyrir 75% af leyfilegum hámarksfjölda gesta. Börn fædd 2015 og síðar teljist ekki með.

Líkamsræktarstöðvar opnar fyrir 75% af leyfilegum hámarksfjölda gesta, en ekki fleiri en 50 manns í hverju rými. Önnur skilyrði óbreytt.

Íþróttir: Hámarksfjöldi þátttakenda í íþróttum 75 í stað 50 í hverju hólfi.

Sviðslistir: Hámarksfjöldi þátttakenda 75 í stað 50 í hverju hólfi/á sviði.

Sitjandi viðburðir: Hámarksfjöldi áhorfenda eða gesta á sitjandi viðburðum, s.s. íþróttakappleikjum, sviðslistum, athöfnum trúar- og lífskoðunarfélaga, verður 150 manns í hverju sóttvarnahólfi í stað 100. Önnur skilyrði óbreytt.

Verslanir: Hámarksfjöldi viðskiptavina í verslunum 200 manns í stað 100.

Veitingastaðir: Opnunartími lengist um klukkustund, frá kl. 21 til kl. 22. Gestir þurfa að hafa yfirgefið staðinn fyrir kl. 23.00.

Skólastarf

Hámarksfjöldi fullorðinna 50 í hverju rými.

Hámarksfjöldi barna/nemenda verður 100 í hverju rými.

Foreldrar og aðstandendur mega koma inn í skólanna.

Blöndun milli hópa barna innan skóla heimil í sundi og íþróttum í grunnskólum.

Viðburðir fyrir utanaðkomandi heimilaðir með þeim takmörkunum sem almennt gilda.

Blöndun nemenda milli hólfa einnig leyfð í háskólum.