Sjáðu hvað stjórn­mála­flokkarnir hafa fengið margar milljónir úr ríkis­sjóði frá 2010 – Fjórir flokkar fengið yfir milljarð

Ís­lenskir stjórn­mála­flokkar hafa sam­tals fengið tæp­lega sjö milljarða út­hlutað úr ríkis­sjóði á verð­lagi dagsins i dag frá árinu 2010 til 2022. Þetta kemur framí út­tekt Við­skipta­blaðsins.

Árið 2018 voru fram­lög til flokkanna aukin veru­lega og hafa þeir síðan fengið út­hlutað nærri fjórum milljörðum króna.

Sjálf­stæðis­flokkurinn, sem hefur verið stærsti flokkur landsins á tíma­bilinu, er sá stjórn­mála­flokkur sem hefur fengið hæsta út­hlutun úr ríkis­sjóði á tíma­bilinu, eða alls ríf­lega 1,7 milljarða króna á verð­lagi dagsins í dag.

Stjórn­mála­flokkar fá á hverju ári út­hlutun úr ríkis­sjóði kveðið er á um þetta í lögum um fjár­mál stjórn­mála­sam­taka og fram­bjóð­enda og um upp­lýsinga­skyldu þeirra.

„Greiðslur hvers árs eru sam­kvæmt á­kvörðun fjár­laga hverju sinni. Til þess að eiga rétt á fram­lagi þarf stjórn­mála­flokkur að hafa fengið að minnsta kosti einn mann kjörinn á þing eða náð að lág­marki 2,5% at­kvæða. Fram­lagið skiptist svo hlut­falls­lega milli flokka eftir at­kvæða­magni í nýjustu kosningum. Fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið fer með fram­kvæmd greiðslna fram­lagsins,“ segir í út­tekt Við­skipta­blaðsins.

Sjálf­stæðis­flokkurinn hefur fengið út­hlutað 50% meira en Vinstri Græn, sem fengið hafa næst hæstu út­hlutunina á tíma­bilinu, eða alls tæp­lega 1,2 milljarða króna. Fast á hæla Vinstri Grænna koma Sam­fylkingin, með 1,1 milljarð króna, og Fram­sóknar­flokkurinn, með rétt rúm­lega 1 milljarð. Aðrir flokkar sem nú sitja á þingi hafa fengið nokkuð lægri út­hlutanir. Píratar hafa fengið 477 milljónir króna, Mið­flokkurinn 396 milljónir, Við­reisn 328 milljónir og Flokkur Fólksins 312 milljónir. Þá fékk Sósíal­ista­flokkurinn 26 milljóna króna fram­lag á þessu ári, þrátt fyrir að hafa ekki náð manni inn á þing í síðustu kosningum.

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra hefur sagt að lækka þurfi fram­lagði og hefur hann lagt til 5% lækkun fram­laga sem hluti af að­gerðum til að draga úr þenslu og verð­bólgu.

Hægt er að lesa ítar­lega út­t­tek Við­skipta­blaðsins hér.