Hagstofa Íslands birti í morgun nýjar verðbólgutölur fyrir aprílmánuð. Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í apríl er 477,5 stig og hækkaði hún um 0,48 prósent frá fyrri mánuði.
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, hefur viðrað áhyggjur sínar af því að verðbólgan fari á flug í því ástandi sem nú ríkir í efnahagsmálum. Hefur hann kallað eftir því að verðtryggingin verði fryst til að verja stöðu heimilanna.
Vilhjálmur gerir nýjar verðbólgutölur að umtalsefni í pistli á Facebook-síðu sinni og bendir hann á að þessi 0,48 prósenta hækkun þýði að verðtryggðar skuldir heimilanna hækkuðu um tæpa tíu milljarða á einum mánuði.
Vilhjálmur klórar sér í kollinum yfir aðferðafræði Hagstofunnar og vísar hann í frétt RÚV þar sem segir:
„Suma þætti neysluverðsvísitölunnar var ekki hægt að mæla í apríl, einfaldlega vegna þess að þeir voru ekki í boði. Þetta á til dæmis við um klippingu, sjúkraþjálfun og tannlækningar. Þá var farin sú leið að láta mælingu síðasta mánaðar gilda um þá þjónustu."
Vilhjálmur telur að Hagstofan sé að nota vísitölu sem er ekki marktæk og veltir hann fyrir sér lögmæti þess.
„Ég spyr er þetta löglegt að nota vísitölu sem hefur áhrif á upp undir 2000 milljarða á verðtryggðum skuldum heimilanna sem er ekki marktæk því það þarf að nota mælingu frá síðasta mánuði fyrir þá þjónustu. Þetta á ekki við klippingu, sjúkraþjálfun og tannlækningar, heldur einnig á flug til og frá landinu. Ég bara spyr er þetta löglegt?“