Sjáðu hvað hækkar á næsta ári: Áfengi, tóbak og bensín

Samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir næsta ár hækka helstu gjöld sem Íslendingar greiða um 2,5 prósent. Þannig verður lagt til að olíugjald, kílómetragjald og sérstakt kílómetragjald hækki um 2,5% í samræmi við forsendur fjárlagafrumvarps fyrir árið 2021.

Kílómetragjald er greitt af skráðum bifreiðum sem eru 10.000 kíló eða meira en sérstakt kílómetragjald af bfireiðum sem eru 5.000 kíló eða meira.

Þá er lagt til að almennt og sérstakt vörugjald af bensíni hækki um 2,5 prósent í samræmi við forsendur frumvarpsins. Sömu sögu er að segja af bifreiðagjaldi sem hækkar um 2,5% nái óbreytt frumvarpið fram að ganga.

Áfengi og tóbak hefur hækkað umtalsvert á undanförnum árum og samkvæmt frumvarpinu er lagt til að áfengisgjald og tóbaksgjald hækki um 2,5 prósent. Fleira hækkar um 2,5 prósent, til dæmis sérstakt gjald til Ríkisútvarpsins og gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra. Loks verður lagt til að festa fjárhæð sóknargjalda við 980 krónur á einstakling á mánuði, en samkvæmt því mun ákvörðuð hækkun sóknargjaldsins nema um 0,5%.

Eins og flestir vita hefur kórónuveirufaraldurinn haft mikil áhrif á ríkissjóð. Þannig er búist við að afkoma ríkissjóðs versni á næsta ári um 192 milljarða króna vegna beinna efnahagslegra áhrifa faraldursins og ákvarðana til að sporna við afleiðingum hans.