Linda Ýr Ægisdóttir átti ekki von á því að hitta forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannesson, – hvað þá á sjálfan kjördag – þegar hún skellti sér á Esjuna í dag. Staðreyndin er þó sú að Guðni varð á vegi hennar en hann var þar á ferð ásamt Elizu Reid eiginkonu sinni og börnum.
Linda fékk að sjálfsögðu að taka eina „selfí“ með forsetanum en þau hittust á miðri Esjunni. Í stuttu samtali við Hringbraut segir Linda að afar vel hafi legið á Guðna. „Jú hann var frábær. Fór upp að steini með konu og börnum. Hann gaf sig á tal við alla sem á vegi hans voru og vildu selfie. Hann fékk allavega mitt atkvæði. Topp maður,“ segir hún.
Myndina má sjá hér að neðan en Linda er til hægri.