„Hér er því fólk sem á allt og hér er fólk sem á ekkert. Þetta finnst mér að stjórnmál ættu að snúast um,“ segir Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar, í pistli sem birtist á vef Vísis í morgun.
Þar birtir hann sex sjokkerandi staðreyndir um Ísland, punkta sem lýsa stöðunni á landinu ágætlega að mati Ágústs.
Ágúst Ólafur nefnir í fyrsta lagi að það tekur meðalforstjórann í Kauphöllinni rúmlega einn dag að vinna sér inn mánaðartekjur öryrkjans, eldri borgarans eða þess atvinnulausa.
„Rúm dagslaun forstjórans eiga að duga hinum í einn mánuð.“
Hann nefnir næst að ríkustu 10% Íslendinga eigi meira af hreinum eignum en allir hinir af þjóðinni, sem eru 90% landsmanna.
„Fjármagnstekjuskatturinn, sem er sá skattur sem hinir ríku greiða helst, er lægstur á Íslandi af öllum Norðurlöndunum. Veiðileyfagjöldin, sem helst stóru útgerðirnar borga, lækkuðu um tæp 60% á þremur árum. Árlegur arður sem rennur beint í vasa útgerðarmannsins og fjölskyldu hans er hærri en veiðileyfagjöldin sem eigandi auðlindarinnar, þjóðin, fær.“
Ágúst Ólafur nefnir svo að nú búi allt að 35 þúsund Íslendingar við fátækt samkvæmt Hagstofunni. Af þeim eru 10 þúsund börn. Loks hafi aldrei jafnmargir en einmitt nú þurft að sækja sér mataraðstoð á Íslandi.
„Það er mjög margt fólk hér á landi sem þarf jafnvel að neita sér um læknisaðstoð og getur ekki veitt börnum sínum það sem jafnöldrum þeirra þykir sjálfsagt. Þetta fólk býr oft í vondum og jafnvel hættulegum húsum. Hér er því fólk sem á allt og hér er fólk sem á ekkert. Þetta finnst mér að stjórnmál ættu að snúast um,“ segir hann.