Sjáðu hvað Björn þarf að borga á ári – Rán­dýrt að lifa á Ís­landi

„Er dýrt að lifa á Ís­landi? Nei, dýrt er ekki rétta orðið. Það er rán­dýrt!“

Þetta segir Grind­víkingurinn Björn Birgis­son í færslu á Face­book-síðu sinni. Þar greinir hann frá því að í upp­hafi árs hafi hann fengið til­kynningar um tvo stóra út­gjalda­pósta ársins 2021. Annars vegar er um að ræða fast­eigna­gjald og hins vegar tryggingar.

„Ein­býlis­hús og tveir bílar, annar kaskó­tryggður. Sam­tals 645600 krónur. 53800 krónur á mánuði sé greiðslum dreift, auk kostnaðar við dreifinguna,“ segir Björn sem bendir á að þetta séu bara tveir út­gjalda­liðir af mörgum föstum liðum. Eftir standa reikningar vegna síma, sjón­varps, hita og raf­magns svo eitt­hvað sé nefnt.

„Er ekki hissa á að þeir launa­lægstu hnussi þegar stjórn­völd guma af vel­ferðinni í landinu. Þeir verða ein­fald­lega ekkert varir við þá vel­ferð - en fá reglu­lega fals­fréttir af henni.“

Margir taka undir með Birni og virðist kostnaður annarra fjöl­skyldna vera á svipuðum slóðum. Einn, sem bú­settur er á Sel­fossi í rúm­lega 200 fer­metra húsi, segist borga rúm­lega 54 þúsund á mánuði í fast­eigna­gjöld. „Þannig að þið sleppið vel í Grinda­vík.“

Anna Kristjáns­dóttir, sem bú­sett hefur verið á Tenerife, í þó nokkurn tíma tekur undir með Birni og segist vera að í­huga að selja í­búðina sem hún á á Ís­landi.

Björn birtir mynd af því hvað hann þarf að greiða vegna fast­eignar sinnar, en um er að ræða tæpar 280 þúsund krónur á ári. Inni í þeirri upp­hæð er fast­eigna­skattur, frá­veitu­gjald, vatns­gjald, sorp­eyðingar­gjald og sorp­hirðu­gjald.

Einn af vinum Björns, sem er bú­settur í Dan­mörku, segir að hann greiði að­eins 4.800 danskar krónur á mánuði, sléttar 100 þúsund krónur, fyrir leigu á 84 fer­metra par­húsi. Inni­falið í því er allt nema inn­bús­trygging, vatn og raf­magn. „Er mjög sáttur hér í Dan­mörku,“ segir sá.