Bjarni Benediktsson hefur sent Fréttablaðinu lista yfir þær gjafir sem hann hefur hlotið í embætti sínu sem fjármála- og efnahagsráðherra á þessu ári.
Gjafirnar sem hann hefur fengið eru fjölbreyttar, en sérstaklega mætti nefna kippu af Pepsi max, boðsmiða á leik í Bestu deildinni, döðlur frá efnahagsráðherra Sádí-Arabíu, bjór og rauðvínsflösku.
Þá fékk hann bæði vefnað frá sendiherra Indlands á Íslandi og orku- og auðlindamálaráðherra Indónesíu.
Listan yfir þær gjafir sem Bjarni fékk á þessu ári má lesa hér fyrir neðan.
- Vefnaður. Gjöf frá H.E. B. Shyam, sendiherra Indlands, dags. 7. mars 2022
- Kassi af döðlum. Gjöf frá Faisal Alibrahim, efnahagsráðherra Sádí-Arabíu, dags. 8. apríl 2022
- Konfektkassi, kippa af Pepsi max, 1 boðsmiði á leik í Bestu deildinni og Unbroken töflur (1 staukur). Gjöf vegna þátttöku í þættinum Besti þátturinn, dags. 13. júní 2022
- Vefnaður. Gjöf frá orku- og auðlindamálaráðherra Indónesíu, dags. 15. júní 2022
- Bókin Debatable Lands/Óræð lönd eftir Bryndísi Snæbjörnsdóttur og Mark Wilson. Gjöf frá Gagarín, dags. 21. júní 2022
- Rauðvínsflaska og mánakökur. Gjöf frá HE Rulong, sendiherra Kína á Íslandi, dags. 7. september 2022
- Fjórir miðar á 30 ára afmæli Stórsveitarinnar. Boð frá Stórsveitinni, dags. 18. september 2022
- Bókin Venjulegar konur – Vændi á Ísland eftir Brynhildi Björnsdóttur. Gjöf frá höfundi á fundi með Stígamótum, dags. 21. september 2022
- Bækurnar Játning eftir Ólaf Jóhann Ólafsson og Lifað með öldinni eftir Jóhannes Nordal. Gjöf frá Ólafi Jóhanni Ólafssyni og Ingimar Jónssyni hjá Pennanum Eymundsson í tengslum við fund um stöðu íslenskrar útgáfu í stafvæddum heimi o.fl., dags, 11. nóvember 2022
- Bjórinn Grýla (1 dós) og jólakúla. Gjöf frá Samtökum íslenskra handverksbrugghúsa, dags. 5. desember 2022