Sjáðu hópana sem Ís­lendingar hata mest og af hverju

Íslendingum er mest illa við andstæðinga bólusetninga, andstæðinga þungunarrofs og loftslagsafneitunarsinna. Þeim er hins vegar minnst illa við konur og kjötætur.

Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar sem Maskína gerði fyrir fjölmiðlanefnd, Fréttablaðið greinir frá.

Í henni kemur meðal annars fram að Íslendingum er helst illa við hópa á grundvelli skoðana þeirra. Bent er á að þátttakendum mislíkar helst hópar sem eru á öndverðri skoðun en þeir sjálfir.

Könnunin byggir á sænskri fyrirmynd, en svo virðist sem Íslendingar séu líklegri til að vera illa við hópa heldur en Svíar. Sá hópur sem Svíum var verst við voru Svíþjóðardemókratar, eða 22,8 prósent. Í samanburði eru 58.2 prósent Íslendinga illa við andstæðinga bólusetninga, sem var sá hópur sem mældist hæstur.

Sænsku könnuninni var þá breytt áður en Íslendingar voru spurðir. Til að mynda voru sænski stjórnmálaflokkarnir teknir út og þeir íslensku settir inn. Ekki var spurt um Sama í íslensku könnuninni en þess í stað spurt um Pólverja, þar sem þeir eru langfjölmennasti hópur innflytjenda hér á landi.

Í íslensku könnuninni einnig spurt um talsmenn útgerðarinnar/sjávarútvegsins og um blaða- og fréttamenn. Ástæðan fyrir því er sögð vera  vegna fréttaflutnings síðustu missera.

Hér fyrir neðan má sjá listann yfir þá hópa sem spurt var út í. Farið er úr þeim hópum sem Íslendingum er minnst illa við, yfir í mest illa við.

Konur: 0.5%

Kjötætur: 0.5%

Heilbrigðisstarfsfólk: 0.6%

Karlar: 0.7%

Gagnkynhneigðir: 0.7%

Samkynhneigðir: 1.9%

Pólverjar: 2.1%

Talsmenn bólusetninga: 2.8%

Trúleysingjar: 3.1%

Tvíkynhneigðir: 3.3%

Dýraverndunarsinnar: 3.6%

Gyðingar: 3.7%

Veiðimenn: 4.2%

Kristnir í þjóðkirkjunni: 4.2%

Atvinnulausir: 4.4%

Bótaþegar: 4.6%

Blaða- og fréttamenn: 4.7%

Lögreglumenn: 4.7%

Stuðningsfólk Viðreisnar: 4.9%

Innflytjendur: 5.1%

Trans fólk: 5.6%

Vopnaandstæðingar: 5.7%

Stuðningsfólk Framsóknarflokksins: 6.4%

Stuðningsfólk Vinstri grænna: 7.0%

Rómafólk: 7.8%

Stuðningsfólk Samfylkingarinnar: 8.1%

Talsmenn þungunarrofs: 8.2%

Umhverfisverndarsinnar: 9.1%

Alþingismenn: 9.8%

Stuðningsfólk Flokks fólksins: 9.9%

Veganistar: 11.0%

Femínistar: 11.1%

Múslimar: 12.0%

Stuðningsfólk Pírata: 13.0%

Stuðningsfólk Sósíalistaflokksins: 14.0%

Stuðningsfólk Sjálfstæðisflokksins: 15.5%

Íhaldsmenn: 15.8%

Kapítalistar: 16.3%

Kristnir trúarsöfnuðir utan þjóðkirkjunnar: 17.3%

Nýfrjálshyggjufólk: 19.8%

Stuðningsfólk Miðflokksins: 25.0%

Talsmenn útgerðarinnar/sjávarútvegsfyrirtækja: 28.9%

Vopnasafnarar: 35.7%

Þjóðernissinnar: 37.4%

Loftlagsafneitunarsinnar: 52.3%

Andstæðingar þungunarrofs: 56.3%

Andstæðingar bólusetninga: 58.2%