Guðmundur Felix Grétarsson, sem fékk ígræddar á sig tvær hendur fyrir næstum 14 mánuðum síðan, sýnir gripstyrkinn í nýju myndbandi á heimasíðu sinni.
Þar skrifar hann að eftir þrjá daga eru nákvæmlega fjórtán mánuðir frá aðgerðinni og að gripið sé að styrkjast ásamt því að hann er kominn með smá snúning á framhandleggnum.