Sjáðu fal­lega kveðju Bubba til Seyð­firðinga – Öllum boðið á Þor­láks­messu­tón­leikana

Tón­listar­maðurinn Bubbi Morthens hefur á­kveðið að bjóða öllum Seyð­firðingum á Þor­láks­messu­tón­leika sína á mið­viku­dags­kvöld.

Bubbi sendi Seyð­firðingum fal­lega kveðju í mynd­bandi sem hann birti á Face­book-síðu sinni í morgun. Eins og flestum er kunnugt þurfti að rýma bæinn um helgina vegna skriðu­falla sem eyði­lögðu nokkur hús í bænum og ollu skemmdum á mörgum húsum. Mikil mildi þykir að ekki hafi orðið slys á fólki.

Í kveðju sinni segist Bubbi hafa hugsað fal­lega til íbúa Seyðis­fjarðar og bæjarins.

„Þetta er einn af fal­legustu bæjum Ís­lands og lagið mitt Regn­bogans stræti varð til í rauninni þar sem ég gekk eftir Regn­bogans stræti á Seyðis­firði,“ segir hann meðal annars.

Bubbi segir svo að lokum að hann ætli að bjóða öllum Seyð­firðingum á tón­leika sína á Þor­láks­messu. „Með óskir um gleði­leg jól, ást og kær­leik til ykkar allra og með von um að allt verði aftur gott í fal­lega bænum ykkur. Gleði­leg jól, öll­sömul.“