Eiríkur Rögnvaldsson, fyrrverandi prófessor í íslensku, hefur sent heildversluninni Innes bréf vegna auglýsingar fyrirtækisins á Oatly-haframjólkurvörum sem það er með umboð fyrir.
Óhætt er að segja að auglýsing fyrirtækisins sem birtist meðal annars á strætóskýlum hafi valdið úlfúð. „It‘s like milk but made for humans,“ segir í auglýsingunni sem á íslensku væri hægt að útleggja sem: „Eins og mjólk, nema fyrir fólk“.
Karen Kjartansdóttir, fyrrverandi fjölmiðlakona vakti athygli á þessu í gær, og greip Eiríkur boltann á lofti. Hann benti á það í hinum fjölmenna Facebook-hópi Málspjall að auglýsingar eigi að vera á íslensku.
„Auglýsingar eiga að vera á íslensku! Það er ástæðulaust og raunar bannað með lögum að birta auglýsingar á ensku þegar markhópurinn er augljóslega íslenskur að mestum hluta. Björk Eiðsdóttir vakti athygli á þessu og samdi frábært íslenskt slagorð í staðinn fyrir enskuna.“
Eiríkur sagði í athugasemd við færslu sína í gærkvöldi að hann hefði skrifað Innes bréf vegna málsins og má sjá það hér að neðan. Þegar þetta er skrifað hefur ekki komið svar frá Innes en Eiríkur segist ætla að birta það ef og þegar það kemur.
Bréf Eiríks:
"Góðan dag. Athygli mín hefur verið vakin á auglýsingu frá ykkur sem nú má víða sjá á strætóskýlum. Á henni er textinn "It's like milk but made for humans". Af því tilefni vil ég vekja athygli á að í 6. grein laga nr. 57/2005, um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu, segir: "Auglýsingar sem höfða eiga til íslenskra neytenda skulu vera á íslensku." Ég vænti þess að auglýsingunum verði breytt þannig að þær samræmist íslenskum lögum."