Sjáðu bréfið sem Bjössi í World Class sendi Svan­dísi

Björn Leifs­son, oftast kenndur við líkams­ræktar­keðjuna World Class, sendi Svan­dísi Svavars­dóttur heil­brigðis­ráð­herra bréf þann 3. desember síðast­liðinn þar sem hann kallaði eftir því að líkams­ræktar­stöðvar fengju að opna. Bréfið var einnig stílað á og sent til Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra og Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra.

Í gær var ljóst að líkams­ræktar­stöðvar verða lokaðar á­fram fram í janúar að minnsta kosti og eru eig­endur stöðvanna – og margir þeirra sem nýta sér þjónustu þeirra – ó­á­nægðir. Af því til­efni hefur World Class nú birt nokkur erindi sem for­svars­menn stöðvarinnar sendu heil­brigðis­yfir­völdum, þar með talið Svan­dísi en einnig Þór­ólfi Guðna­syni sótt­varna­lækni.

Í bréfi sínu frá 3. desember bendir hann á að í ná­granna­löndum okkar, til dæmis á Norður­löndunum, séu líkams­ræktar­stöðvar ekki lokaðar. „Meira að segja í löndum þar sem á­stand og út­breiðsla sóttarinnar hefur verið mun al­var­legri en hjá okkur, t.d. í Bret­landi, á það sama við. Í þessum löndum er þáttur heilsu­ræktar­stöðvanna í því að við­halda líkam­legu og and­legu heil­brigði fólks talinn svo mikil­vægur að þeim er haldið opnum.“

Björn segist enn fremur hafa leitað á­lits tveggja lög­manna um laga­grund­völl þess að halda líkams­ræktar­stöðvum lokuðum.

Bréf þeirra er sömu­leiðis birt á Face­book-síðu World Class en þar kemur meðal annars fram það álit að ráð­herra sé skylt að láta sömu sjónar­mið ráða í á­kvörðun um að opna fyrir rekstur heilsu­ræktar­stöðva eins og gert er þegar metið er hvort opnaðir skuli sund­staðir eða að­staða fyrir aðrar í­þróttir. Á­kvörðun um að halda heilsu­ræktar­stöðvum lokuðum þegar opnað er fyrir sam­bæri­lega starf­semi sé ekki lög­mæt. Frá því megi ekki víkja nema með rök­stuðningi sem byggist á mál­efna­legum grund­velli.

„Í ljósi þeirra miklu hags­muna sem eru af því að heilsu­ræktar­stöðvar landsins fái að hefja starf­semi að nýju fer ég þess á leit að slík á­kvörðun verði tekin með þeim tak­mörkunum einum sem styðjast við mál­efna­leg rök,“ segir Björn en bréf hans má sjá hér að neðan.

Eig­endur líkams­ræktar­stöðva eru margir orðnir ó­þreyju­fullir og sagði Jakob­ína Jóns­dóttir, eig­andi Grandi 101, í Morgunút­varpinu á Rás 2 í morgun að rekstrar­aðilar telji þá á­kvörðun stjórn­valda að opna sund­laugar frá og með morgun­deginum vera í ó­sam­ræmi við jafn­ræðis­reglu. Eru eig­endur líkams­ræktar­stöðva nú sagðir vera farnir að skoða réttar­stöðu sína og jafn­vel höfða mál.

Vegna nýrrar reglugerðar stjórnvalda um takmörkun á samkomum vegna farsóttar sem hefur gildissvið frá 10. desember 2020...

Posted by World Class Iceland on Miðvikudagur, 9. desember 2020