Sindri sóknarprestur sagði sig úr kirkjunni: Sér fram á fjölgun á ný

Sindri Geir Óskarsson sóknarprestur í Glerárkirkju á Akureyri sér fram á að það muni fjölga í þjóðkirkjunni á ný. Í grein sem hann skrifar á vef Vísis segir Sindri frá því að hann hafi sjálfur sagt sig úr þjóðkirkjunni og skilji vel þá sem gert hafi slíkt hið saman.

„Það er auðvelt að hoppa á einfaldar útskýringar og segja til dæmis skort á kristinfræðikennslu rót þess að traust til þjóðkirkjunnar fari dvínandi eða úrsögnum fjölgi. Ég hef samt grun um að óþol gagnvart forréttindastöðu og forréttindablindu leiki þar stærra hlutverk en aðalnámskrá,“ segir hann.

„Ég hef litla trú á því að meðlimafjöldi þjóðkirkjunnar sé í frjálsu falli og endi í núlli. Að árið 2040 muni síðasti meðlimur þjóðkirkjunnar slökkva ljósin í Hallgrímskirkju, læsa á eftir sér og henda lyklinum. Við erum frekar að sigla í áttina að kjörfylgi sem líklega er um 60% þjóðarinnar.“

Hann telur að óánægja fólks hafi ekkert að gera með starf kirkjunnar, heldur vegna mála sem kirkjan hafi ekki mætt af auðmýkt.

„Ég gekk aftur í kirkjuna þegar ég áttaði mig á því að sóknargjaldið mitt rennur beint í litla sveitasöfnuðinn minn. Mig langaði að styðja við starfið þar og tryggja að hægt væri að bjóða upp á kóra- og barnastarf í sveitinni.“

Það muni fjölga á ný:

„Það er reynsla mín að eftir þetta tímabil fækkunar sé fólk í meira mæli að velja að ganga aftur í kirkjuna, nú er árlegt að börn sem ekki voru skírð í æsku taki skírn og skrái sig í kirkjuna fyrir fermingu, eins að fólk sem hafði misst trúnna á kirkjunni heyrir í okkur og vill vita hvernig það geti skráð sig aftur.“

Sindri segir að fækkunin hafi verið mikilvæg. „Ekkert annað hefur hrist eins vel í stoðum forréttindablindunnar sem við glímum mörg hver við innan kirkjunnar. Kirkjan á ekki og má ekki líta svo á að hún geti talað niður til fólks eða að hún eigi rétt á einhverri stöðu,“ segir hann. „Ég hef fulla trú á því að kirkjan sé á réttri leið og er þakklátur þeim sem hafa sagt sig úr kirkjunni og gagnrýnt hana, því án þeirra radda værum við eflaust enn á bólakafi í forréttindablindunni sem við erum mörg að reyna að brjótast úr.“