Sindri sigraði Ingó í héraðsdómi

Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó Veðurguð, tapaði í máli sínu gegn Sindra Þór Sigríðarsyni, en Sindri var sýknaður af öllum kröfum Ingó í meyðirðamáli sem hann höfðaði gegn honum.

Fréttablaðið greinir frá þessu. Sjálfur mætti Ingó ekki í héraðsdóm til að vera viðstaddur við dómsuppsöguna en Sindri Þór mætti og var að vonum ánægður með niðurstöðu málsins.

Meðal ummæla sem Sindri Þór lét falla á samfélagsmiðlum á þessum tíma var: „Maður sem er svo þekktur fyrir að ríða börnum.“

Lesa má nánar um málið á vef Fréttablaðsins.