Fyrsta meiðyrðamál tónlistarmannsins Ingólfs Þórarinssonar, kallaður Ingó Verðurguð verður tekið fyrir á föstudaginn.
Málið er höfðar gegn Sindra Þór Hilmars-Sigríðarsyni en Sindri er krafinn um þrjár milljónir fyrir ummæli sín um Ingó á netinu.
Sindri neitaði opinberlega að biðjast afsökunar á ummælum sínum í sumar og sagðist ekki ætla greiða Ingó krónu.
Nú þegar styttist í dómsmálið segist hann vera spenntur yfir því að mæta Ingó
„Strákurinn er á leið í réttarsal. Þetta verður aktívismi. Þetta verður pönk. Við munum afhjúpa svo mikinn skít! Djöfull hlakka ég til,“ skrifar Sindri á twitter og deilir frétt um meiðyrðamálið.
Strákurinn er á leið í réttarsal. Þetta verður aktívismi. Þetta verður pönk. Við munum afhjúpa svo mikinn skít! Djöfull hlakka ég til.https://t.co/zLgYz4snbA
— Sindri Þór (@sindri8me) January 5, 2022