Sindra finnst frekar þrengt að sér en einkabílnum: „Mér finnst bíllinn hafa alveg nógu pláss“

Hjóla­bogar á um­ferðar­eyju á Geirs­götu við Hafnar­torg hafa vakið at­hygli á sam­fé­lags­miðlum. Sindri Freyr Ágústs­son, for­maður Sam­taka um bíl­lausan lífs­stíl er ekki hrifinn. Þetta kemur fram í frétt Fréttablaðsins

Við­tal við Sindra má horfa á neðst í fréttinni.

„Mér líst ekki nógu vel á þetta,“ segir Sindri sem sjálfur prófaði að læsa hjólinu sínu við hjóla­bogann. „Við sjáum að við erum á miðri um­ferðar­eyju og hjólið mitt mjög ber­skjaldað,“ segir Sindri í samtali við Fréttablaðið.

Skipu­lags­fræðingurinn Björn Teits­son vakti at­hygli á hjóla­bogunum á Twitter. Hann er gáttaður á stað­setningunni og margir taka undir.

Sindri segir að svo virðist vera sem yfir­völd hugi ekki að inn­viðum fyrir hjólandi veg­far­endur.

„Það er bæði mikil um­ferð hérna og mjög þung um­ferð. Ég hef á­hyggjur af því að hjólið sé öruggt en svo er líka bara ekki gott að­gengi að þessum stæðum og þetta er eina stæðið á þessu nýja Hafnartorgi.“

Hann segir eina val­kosturinn utan um­ferðar­eyjunnar á Hafnar­torgi vera að læsa hjólinu sínu við ljósa­staur.

„Og við viljum nú helst ekki gera það, við viljum helst hafa al­menni­leg hjóla­stæði við verslanir.“

Sindri segir hjóla­boga líkt og þessa alls ekki hvetja borgar­búa til að nýta sér hjól sem ferða­máta. Hjóla­inn­viðir vaxi ekki nógu hratt.

„Það eru tölu­vert fleiri sem hjóla núna en gerðu bara fyrir fimm árum. Hjóla­inn­viðirnir eru að skána en mér þykir ekki nóg að gert, sér­stak­lega miðað við hvað hjól­reiða­fólki fjölgar hratt,“ segir Sindri.

„Ég held að það sé um að kenna anda for­tíðarinnar. Það er alltof mikil hugsun að við höfum gert þetta svona og því höldum við á­fram að gera þetta svona. Hjól hafa alltaf verið í bak­grunni og ekki nægi­lega mikið gert fyrir hjóla­inn­viði.“

Sindri kallar eftir hugar­fars­breytingu hjá stjórn­mála­mönnum og em­bættis­mönnum. „Að það eigi að huga jafn mikið að hjólum og hjóla­inn­viðum og öðrum samgöngumátum.“

Nú er oft talað um að það sé verið að þrengja að einka­bílnum. Finnst þér þrengt að einka­bílnum hér?

„Mér finnst nú frekar þrengt að mér hér sko með bíla­um­ferð í báðar áttir. Þannig að mér finnst bíllinn hafa alveg nógu pláss, alla­vega hérna í mið­bænum, þar sem er oftast talað um að sé mest þrengt að honum.“